top of page

ÖRYGGISSTEFNA

Það er stefna Markaðsgreiningar að tryggja öryggi upplýsinga félagsins og viðskiptavina sinna m.t.t leyndar, réttleika og tiltækileika. Það er okkar stefna að standa vörð um öryggi gagna og þess búnaðar sem gögnin eru rekin á.

  • Markaðsgreining leitast við að finna og meðhöndla áhættu. Áhættumat og innri úttektir eru framkvæmdar reglulega til að ákveða hvort frekari aðgerða sé þörf og til að vinna að stöðugum umbótum.

  • Markaðsgreining verndar gögn og upplýsingakerfi gegn óheimiluðum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, tapi eða flutningi.

  • Markaðsgreining starfrækir skilvirk aðgangsöryggiskerfi að húsnæði og upplýsingakerfum fyrirtækisins með það að marki að vernda gögn og búnað gegn rekstrartruflunum, misnotkun, þjófnaði, skemmdarverkum, glötun o.s.frv.

  • Starfsmönnum og þjónustuaðilum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri mál Markaðsgreiningar, viðskiptavina eða annarra starfsmanna.

  • Markaðsgreining stuðlar að virkri öryggisvitund starfsmanna, viðskiptavina, þjónustuaðila og gesta með kynningum og þjálfun. Starfsemi og starfshættir skulu vera til fyrirmyndar hvað varðar upplýsingaöryggi.

  • Markaðsgreining fylgir góðum viðskiptaháttum, landslögum og persónuvernd til að tryggja hagsmuni viðskiptavina. 

Markaðsgreining endurskoðar þessa stefnu eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.

bottom of page