top of page

PERSÓNUVERNDARSTEFNA

I. ALMENNT

Persónuvernd þín skiptir Markaðsgreiningu miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu félagsins.

II. PERSÓNUVERNDARLÖGGJÖF

Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi hlutar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga. Taka lögin m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.

III. ÁBYRGÐ OG TENGILIÐUR

Gallup á Íslandi ber ábyrgð á skráningu og meðferð persónuupplýsinga Markaðsgreiningar þar sem lausnin er í eigu þess, og er svokallaður ábyrgðaraðili vinnslu í skilningi persónuverndarlöggjafar.

Þá eru þeir aðilar sem Markaðsgreining kann að miðla upplýsingum til, sbr. V. kafli þessarar persónuverndarstefnu, sjálfstæðir ábyrgðaraðilar varðandi þá vinnslu upplýsinga sem fer fram á þeirra vegum og bera sjálfstæða ábyrgð á því að öll meðferð þeirra sé í samræmi við persónuverndarlöggjöf.

Hægt er að hafa samband við okkur að Álfheimum 74, 104 Reykjavík, með því að senda skriflega fyrirspurn á info@markadsgreining.is og með því að hringja í 450-0600 ef þú hefur einhverjar spurningar í tengslum við persónuvernd.

IV. SÖFNUN OG NOTKUN

Markaðsgreining vinnur sölutöluupplýsingar úr verslunum í samstarfi við Nielsen í Noregi. Markaðsgreining leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga og hafa allir starfsmenn hafa skrifað undir trúnaðar- og þagnareið, sem á jafnt við gagnvart viðskiptavinum og birgjum. Vinnsla Markaðsgreiningar fer ýmist fram vegna framkvæmdar samnings, samþykkis, fyrirmæla í lögum, reglum og stjórnvaldsfyrirmælum, eða á grundvelli lögmætra hagsmun. Til að geta sinnt hlutverki sínu safnar Markaðsgreining eftirfarandi upplýsingum og vinnur með þær í eftirfarandi tilgangi:

  • nafn þitt, netfang, kennitölu þess lögaðila sem þú ert í forsvari fyrir, tegund, umfang og dagsetningu viðskipta til að geta uppfyllt skyldu okkar samkvæmt bókhaldslögum og sinnt gæðaeftirliti,

  • nafn þitt, netfang og aðgangsupplýsingar með þínu samþykki til að geta gert þér kleift að nota vefsíður okkar,

  • nafn þitt, símanúmer og netfang til að geta svarað fyrirspurnum og brugðist við óskum þínum, ef þú hefur samband við okkur að fyrra bragði,

Þegar þú skoðar og notar vefsvæði Markaðsgreiningar söfnum við upplýsingum sem vafri þinn sendir í þeim tilgangi að bæta notendaupplifun og auka öryggi, þ.e. gögn sem geta falið í sér upplýsingar eins og IP-tölu, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þjónustunnar, tíma og dagsetningu heimsóknar og önnur talnagögn.

 

Við notum vefkökur til þess að aðgreina þig frá öðrum notendum á vefsíðu Markaðsgreiningar. Vefkökur eru litlar textaskrár sem netvafrinn þinn vistar á tölvunni þinni sé netvafrinn þinn stilltur til að samþykkja notkun á vefkökum. Vefkökurnar gera okkur kleift að muna ákveðnar stillingar hjá notanda til að bæta notendaupplifun og fá tölfræðiupplýsingar um notkun á vefsíðu Markadsgreining.is.

 

Notendur geta ákveðið hvort þeir leyfa sumar eða allar vefkökur með stillingum í netvafra. Ef notendur kjósa að leyfa ekki vefkökur þá kann hluti vefsíðunnar að verða óaðgengilegur.

V. MIÐLUN

Við seljum aldrei persónuupplýsingar um þig.  Við miðlum aldrei persónuupplýsingum til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni liggi fyrir (sem þér er frjálst að hafna) nema þar sem okkur er það skylt samkvæmt lögum eða í þeim tilvikum sem talin eru upp í IV. kafla eða í næstu málsgrein.

Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki okkar í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Við deilum einnig upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með okkur við gæða -og markaðsstarf. Við afhendum vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerum við þá samning þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.

Þeir aðilar sem Markaðsgreining kann að miðla upplýsingum til eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar varðandi þá vinnslu upplýsinga sem fer fram á þeirra vegum.

VI. VERNDUN

Markaðsgreining leggur mikla áherslu á að vernda vel allar persónuupplýsingar og hefur því yfir að skipa innra eftirlitskerfi sem á að tryggja að ávallt skulu gerðar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir.

 

Við munum tilkynna án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir hlutaðeigandi. Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.

VII. VARÐVEISLA

Markaðsgreining reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um tengiliði viðskiptavina og birgja sinna nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum.  Við varðveitum persónuupplýsingar um tengiliði þangað til að ósk berst um annað, og svo lengi sem það er nauðsynlegt til að uppfylla lagaskyldu.

VIII. RÉTTINDI ÞÍN

Þú átt rétt á og getur óskað eftir eftirfarandi upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á info@markadsgreining.is:

  1. að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum,

  2. að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar,

  3. að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar,

  4. að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær,

  5. að andmæla og / eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar,

  6. að fá afhentar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja,

  7. að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild, með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn,

  8. að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.

Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á við) innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Athygli er vakin á að innheimt er sanngjarnt gjald byggt á umsýslukostnaði sé farið fram á meira ein eitt eintak. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar.

Þú átt alltaf rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga, en við kynnum að meta það ef þú gæfir okkur tækifæri til að leysa málið áður en þú hefur samband við Persónuvernd.

IX. BREYTINGAR

Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu fyrirtækisins; www.markadsgreining.is.

bottom of page